Fjölskylduhjálp Íslands er í miklum vandræðum með burðapoka undir þær matvörur sem úthlutað er frá starfstöðvum okkar á Suð-vestur horni landsins. Árið 2011 afgreiddum við í um 90.000 matarpoka. Fyrirtækin geta eðlilega ekki gefið okkur endalaust haldapoka eins og þau hafa gert s.l. 10 ár. Þar sem margir eiga notaða burðaplastpoka heima hjá sér er mikilvægt að koma þeim í áframhaldandi notkun með umhverfissjónarmið í huga.
Við biðjum alla þá er sækja mataraðstoð til okkar að koma með innkaupapoka eða
innkaupatöskur og í framhaldinu hefjum við pokasöfnun.
Mataraðstoð verður miðvikudaginn 27. mars í Eskihlíðinni í Reykjavík frá kl. 14 til 16.30 og
sama dag í Grófinni 10 C Reykjanesbæ frá kl. 16 til 18.
Hársnyrting er í boði frá kl. 11 til 16 miðvikudaginn 27. mars í Eskihlíðinni.
Comments are closed.